Vafrakökur
Vefsíðan kemur fyrir tímabundnum lotukökum í hvert sinn sem þú heimsækir síðuna. Þessar kökur eru nauðsynlegar til að framkvæma lotuna, en þær innihalda ekki persónugögn. Þessi vefsíða safnar veftölfræði með Matomo sem er hýstur í heild sinni á miðlurum EU-OSHA, sem staðsettir eru í Evrópusambandinu. Matomo mun geyma kökur á tölvu þinni en þær innihalda ekki persónuupplýsingar. Matomo fær aðeins IP-töluna til að fá landfræðilegar tölfræðiupplýsingar (land, svæði og borg). Ef þú vilt ekki að EU-OSHA fylgist með þér í gegnum Matomo, getur þú valið að heimila ekki Matomo með því að smella á...
Napo …tæknistreita
Þegar vinnustaðir tileinka sér nýja tækni og stafræn vinnutæki, er snemmbúin ráðgjöf og þjálfun starfsfólks nauðsynleg til að koma í veg fyrir tæknispennu. Þessi Napo kvikmynd sýnir dæmigerða streituvalda samtímis, eins og samhliða myndbandsráðstefnur, símtöl, spjall og notkun nútíma hugbúnaðar og vélbúnaðar. Það eykur meðvitund um mikilvægi snemmtækrar þátttöku, þarfamiðaðrar þjálfunar og að taka tillit til reynslu starfsmanna við innleiðingu nýrrar tækni. Myndin sýnir hvernig vinnustaðir geta lágmarkað streitu og skapað afkastamikið, tæknistutt vinnuumhverfi.
NAPO.....Ofbeldi í vinnu
Vinnutengt ofbeldi getur falið í sér misbeitingu frá aðilum sem tengjast vinnustaðnum, s.s. viðskiptavinir, skjóstæðingar, sjúklingar, þjónustunotendur eða nemendur, sem beinist gegn starfsfólkinu. Þetta getur leitt til líkamsskaða, alvarlegri, ítrekaðri og skaðlegri orðræðu eða hótunum.Slíkt getur haft alvarleg áhrif á heilsu starfsfólks. Vinnutengt ofbeldi getur valdið áverka; álagi og haft áhrif á andlega heilsu; sem getur leitt til örorku eða andláts. Þetta NAPO myndband vekur athygli á mikilvægi þess að verja starfsfólk fyrir ofbeldi með því að innleiða nauðsynlegar tæknilegar lausnir...
Napo í… eldhætta!
Þessi kvikmynd sýnir eld- og sprengihættuna á vinnustaðnum og þær ráðstafanir sem hægt er að grípa til til að draga úr hættunni. Grundvallaratriði við stjórnun áhættunnar er öflugt áhættumat. Til þess að eldur kvikni eða sprenging eigi sér stað þarf þrjá þætti: eldfimt efni (eldsneyti), loft (súrefni) og íkveikjugjafa (hita). Markhópur myndarinnar er fyrst og fremst starfsfólk sem vinnur í iðnaði og/eða störfum þar sem eld- og sprengihætta er mest.
